Coca Cola mótið í borðtennis
Coca Cola mótið í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 20. apríl 2024.
Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.
Dagskrá mótsins:
Laugardagur 20. apríl:
kl. 10:00 Eldri flokkur karla 60+
kl. 10:30 1. flokkur karla og kvenna
kl. 11:00 Byrjendaflokkur (Fyrir þá keppendur sem hafa aldrei leikið í 2. flokki áður)
kl. 12:30 Meistaraflokkur karla og kvenna
kl. 13:00 2. flokkur karla og kvenna
Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti. Heimilt er að leika í tveimur flokkum.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.
Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 18. apríl kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma. Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693
Yfirdómarar: Árni Siemsen
Mótsstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen
Ísak Unnarsson
Dregið verður í mótið fimmtudaginn 18. apríl kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu