Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Coca Cola mótið í borðtennis verður haldið 19. febrúar

Coca Cola mótið  í borðtennis fer fram í TBR-Íþróttahúsinu Laugardaginn 19. feb 2022.

Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fjögur efstu sæti í hverjum flokki og leikið verður  með Stiga 3ja stjörnu kúlum.

Dagskrá mótsins: 

Laugardagur 19. feb:    

kl. 10:00  Eldri flokkur karla 60+

kl. 10:30  1. flokkur karla og kvenna      

kl. 12:30  2. flokkur karla og kvenna

kl. 13:30  Meistarafl. karla og kvenna      

Keppnisfyrirkomulagið er þannig að keppt verður í riðlum og í fjölmennari flokkum fara sigurvegarar úr riðlum og keppa í einföldum úrslætti.  Heimilt er að leika í tveimur flokkum.

Þátttökugjald í mótið er kr. 1.500- í hvern flokk.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 17. Feb kl 17:00 og skal senda skráningar á netfangið [email protected] eða sms skeyti í síma 8940040 fyrir þann tíma.  Hægt er að greiða fyrir keppni með millifærslu á reikning Borðtennisdeildar Víkings: Kennitala 6603850379, reikningsnúmer: 0525-26-3693

Yfirdómarar: Árni Siemsen                              

Mótsstjórn skipa:  Pétur Ó. Stephensen og Jóhann Bjarnason

Dregið verður í mótið fimmtudaginn  17. feb kl. 18:00 í TBR-Íþróttahúsinu

Skráningar:  Pétur s-8940040/[email protected]. og sms skeyti.

Síðasti skráningardagur er fimmtudaginn 17. Feb kl. 17:00.

Plakat mótsins má finna hér

Með Borðtenniskveðju

F.h. Borðtennisdeildar Víkings

Pétur Ó. Stephensen

Aðrar fréttir