Covid 19. Íslandsmót í mars 2020
Í tilefni af tilkynningu ríkisstjórnarinnar fyrr í dag um samkomubann sem nær til samkoma sem eru yfir 100 manns að stærð, frá 15. mars til 12. apríl nk. vill Borðtennissamband Íslands koma því á framfæri að verið er að skoða áhrif bannsins á borðtennisstarfið á landinu næstu vikur og mánuði.
Málið verður tekið fyrir á stjórnarfundi næsta þriðjudag.
Stjórnin ræddi saman fyrr í dag og nálgunin nú að bannið þurfi ekki að hafa áhrif á lokamót grand prix laugardaginn 21. mars nk. þar sem ljóst sé að færri en 100 manns taka þátt í viðburðinum. Sú afstaða kann að breytast og mun hún taka mið af leiðbeiningum stjórnvalda (Ríkisstjórn, sóttvarnarlæknir og ÍSÍ).
Allar líkur eru á því að fella þurfi niður Íslandsmót öðlinga skv. tilmælum ÍSÍ en ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð á mótinu milli leikmanna sem sumir hverjir teljast í áhættuhóp.
Hins vegar þykja allar líkur á að fresta þurfi Íslandsmóti unglinga, þar sem þátttakendur og áhorfendur ná oft um 200 manns og mótið fellur innan tímabilsins. Til greina kemur að mótinu verði frestað um 4 vikur, með fyrirvara um að samkomubannið verði ekki framlengt. Nánari upplýsingar um það síðar.
Stjórnin biður keppendur um að þakka fyrir leiki með hneigingum í tveggja metra fjarlægð í stað handabands.
Sú tilkynning barst jafnframt frá ETTU fyrr í dag að undankeppni Evrópumótsins í liðakeppni sem fram átti að fara í apríl falli niður en öllum alþjóðlegum viðburðum í borðtennis hefur nú verið frestað í allavega sjö vikur.
Hér að neðan eru leiðbeiningar frá ÍSÍ vegna Covid 19 veirunnar
Almennar forvarnir vegna COVID-19
- Kynntu þér og fylgdu leiðbeiningum og tilmælum Almannavarna/Embættis landlæknis
- Forðastu að heilsa með handabandi, faðmlagi og kossum
- Fylgdu leiðbeiningum um hreinlæti, s.s. handþvott og sprittun
- Forðastu að snerta eigin augu, nef og munn
- Forðastu að deila drykkjum, borðáhöldum
- Hafðu a.m.k. 2 metra á milli þín og annarra einstaklinga
- Forðastu snertingu við fólk sem er veikt
- Vertu meðvituð um einkenni viðkomandi veiru/inflúensu:Hósti Hiti, Bein og vöðvaverkir, Þreyta og slappleiki
- Vertu heima ef tilmæli eru um það
- Gerðu áætlun til að tryggja að aðstoð sé til staðar (t.d. til að ná í vistir, lyf eða aðrar nauðsynjar)
- Notaðu andlitsgrímu til að koma í veg fyrir veirudreifingu á milli heimilismanna eða annarra í samfélaginu
- Þegar þú ert veik/veikur skaltu vera í burtu frá öðrum eins mikið og mögulegt er til að forðast að smita annað fólk
Stjórn BTÍ