Dómarafundur. Stofnun dómarafélags.
Næsta fimmtudag 6. mars kl. 18.00 verður haldinn dómarafundur á skrifstofu BTÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum (Engjavegur 6, 3. hæð).
Meðal umræðuefna:
– Endurreisn dómarafélags.
– Landsdómaranámskeið.
– Alþjóðadómaranámskeið.
– Dómgæsla á Smáþjóðaleikunum 2013.
Fundarstjóri verður Árni Siemsen alþjóðadómari.
Eru allir hvattir til að mæta.