Dómarahornið.
Mynd: ETTU
Ný síða hefur verið sett upp á vef BTÍ sem ber heitið Dómarahornið. Inni á síðunni sem er að finna hér og efst til hægri á vef BTÍ eru nú íslensk þýðing á reglum ITTF um borðtennis (e. the laws of table tennis) úr handbók ITTF 2012/2013 og einnig íslensk þýðing á glærum sem notaðar eru á 1. og 2. stigs dómaranámskeiði ITTF. Heiðurinn að þessum þýðingum á borðtennismaðurinn Ársæll Aðalsteinsson úr Víkingi og kann BTÍ honum bestu þakkir fyrir gott starf.