Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Dómaranámskeið í Reykjavík 15. febrúar – Course for umpires

Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson alþjóðadómari heldur námskeið fyrir dómara, sem lýkur með prófi.

Námskeiðið fer fram í C-sal ÍSÍ sunnudaginn 15. febrúar og hefst kl. 16:00. Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Gert er ráð fyrir að námskeiðið taki einn klukkutíma og síðan verði nokkurra mínútna hlé áður en landsdómaraprófið verður tekið, sem má nýta allt að klukkutíma í.

Til prófs eru reglur ITTF, dómaraglærupakkar 1 & 2 og dómarahandbók ITTF (á ensku). Allt námsefni til prófs er að finna undir Fróðleikur>Dómarar. Próftakendum er sérstaklega ráðlagt að kynna sér vel glærupakka 1 & 2.

*NÝTT* Í ljósi samtala við iðkendur í hreyfingunni verður námskeiðið flutt á ensku þessu sinni ef áhugi er fyrir því. Verður prófið þá bæði á ensku og íslensku – og alltaf sjálfsagt að spyrja spurninga á íslensku á meðan námskeiði og prófi stendur. Vinsamlegast látið vita í skráningu ykkar ef þið hefðuð áhuga á enskri útgáfu.

//*NEW* Because of players’ expressed interest, the course will be taught in English, if sign-ups indicate continued interest. In that case, the exam would both be in English and Icelandic. Please mention in the registration email if you’d like the English version.

Skráningu á námskeiðið skal skilað á netfangið [email protected] og skráningargjald kr. 1.500 greitt á sama tíma (kennitala: 581273-0109 og reikningsnúmer: 0334-26-050073. Afrit sendist á [email protected], setjið dómaranámskeið og nafn þátttakanda í skýringu.).

Það er um að gera að taka þátt og bæta þekkinguna á reglum íþróttarinnar – sérstaklega rétt fyrir Íslandsmót, en þar fá landsdómarar greitt fyrir dómgæslu eins og undanfarin ár.

Aðrar fréttir