Dómaranámskeið og próf á Suðurlandi
Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson alþjóðadómari heldur námskeið fyrir dómara, sem lýkur með prófi. Námskeiðið fer fram í Laugalandsskóla 14. desember, og hefst kl. 15.30.
Gert er ráð fyrir að námskeiðið taki u.þ.b. klukkutíma og síðan verði stutt hlé áður en landsdómaraprófið verður tekið.
Skráningu á námskeiðið skal skilað á netfangið [email protected].
Skráningargjald er kr. 1.500.
Forsíðumynd af fésbókarsíðu BTÍ.
Uppfært 5.12.