Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Dómaranámskeiði á Suðurlandi frestað til 18. janúar

Áður auglýst dómaranámskeið 14. desember nk. hefur verið fært til fimmtudagsins 18. janúar nk. vegna veikinda. Beðist er velvirðingar á þeim truflunum sem þetta kann að valda.

Námskeiðið verður eins og fyrr var auglýst kl. 15:30 í Laugalandsskóla og kostar kr. 1500 að taka þátt. Kennari námskeiðsins, Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson vill jafnframt koma á framfæri að líkt og á fyrri námskeiðum verður prófað upp úr reglum ITTF, glærupökkum 1-2 og dómarahandbók ITTF – sem er allt efni sem má finna undir Fróðleikur / Dómarar á vefnum.

Skráningar skulu berast á netfangið [email protected].

Aðrar fréttir