Dómarar á Íslandsmót
Vegna Íslandsmóts í borðtennis, sem haldið verður helgina 6.-7. mars, er óskað eftir dómurum til að dæma á mótinu.
Keppni fer fram í TBR-húsinu við Gnoðarvog og hefst kl. 10:30 á laugardeginum. Greiddar verða 500 kr. fyrir hvern dæmdan leik.
Æskilegt er að dómarar geri boð á undan sér á [email protected] en það er þó ekki nauðsynlegt.