Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Dregið hefur verið í riðla á Norður-Evrópumótinu í borðtennis

Norður-Evrópumótið í borðtennis fer fram í Haapsalu í Eistlandi 26.-28. júní nk. og heldur unglingalandsliðið til Eistlands 25. júní. Keppendur Íslands að þessu sinni eru 20 talsins, og hefur ekki áður farið svo stór hópur frá Íslandi á mótið. Dregið hefur verið í riðla í liðakeppni á mótinu, og er niðurstaðan þessi:

Kadett (sveinar), f. 2003-2005

A-riðill: Ísland-II (Arnar Logi Viðarsson, Trausti Freyr Sigurðsson), Lettland, Finnland-I, Noregur-I, Eistland-II
B-riðill: Ísland-I (Eiríkur Logi Gunnarsson, Matiss Meckl), Litháen, Eistland-I, Finnland-II, Noregur-II

Kadett (meyjar), f. 2003-2005

A-riðill: Ísland-II (Hildur Marín Gísladóttir, Kristín Ingibjörg Magnúsdóttir, Lóa Floriansdóttir Zink), Eistland-I, Noregur-I, Litháen
B-riðill: Ísland-I (Harriet Cardew, Þóra Þórisdóttir), Lettland, Eistland-II, Noregur-II

Junior (drengir), f. 2002-2000

A-riðill: Ísland-II (Elvar Kjartansson, Gestur Gunnarsson, Karl A. Claesson, Óskar Agnarsson), Finnland-I, Noregur-II, Eistland-II
B-riðill: Ísland-I (Ellert Kristján Georgsson, Ingi Darvis Rodriguez, Magnús Gauti Úlfarsson), Litháen, Eistland-I, Noregur-I, Finnland-II

Junior (stúlkur), f. 2002-2000

Einn riðill: Ísland (Ársól Clara Arnardóttir, Lára Ívarsdóttir, Stella Karen Kristjánsdóttir, Þórunn Ásta Árnadóttir), Eistland-I, Eistland-II, Finnland, Noregur-I, Noregur-II

Fararstjórar og þjálfarar
Kristján Viðar Haraldsson
Skúli Gunnarsson
Ásta Melitta Urbancic

Undanfarin ár hefur verið sýnt beint frá mótinu á netinu og eru áhugasamir hvattir til að kynna sér það á vef mótsins, http://www.lauatennis.ee/web/node/1705.

 

ÁMU

Aðrar fréttir