Drög að mótaskrá 2021-2022
Komin eru drög að mótaskrá fyrir
tímabilið 2021-2022. Breytingar á mótaskrá frá fyrra tímabili eru:
– Í samræmi við reglugerðarbreytingu BTÍ
þá hefur BTÍ aðeins umsjón með deildarkeppni, Íslands- og bikarmótum. Önnur mót
eins og aldursflokkamótaröð og GrandPrix mótaröð er ekki á ábyrgð BTÍ og verður
því ekki skipulagt af mótastjórn BTÍ.
– Ef félög óska í sameiningu eða upp á
sitt einsdæmi að halda úti einhvers konar mótaröð þá er þeim að sjálfsögðu frjálst
að gera það. BTÍ hvetur samt félög til þess að halda stök mót í stað mótaraðar
fyrir börn og unglinga og ætti fjöldi lausra helga á mótaskrá að veita svigrúm
til þess.
– Búið er að ákveða þrjár helgar sem
ætlaðar eru fyrir deildarkeppni fram að áramótum. Nánar um hve margar umferðir
og/eða hvaða umferðir verða spilaðar á hverri helgi verður birt þegar nær
dregur enda erfitt að ákveða slíkt með nákvæmni áður en nákvæmur fjöldi liða
liggur fyrir. Deildarhelgar eftir áramót sem og helgar fyrir undanúrslit og
úrslit verða ákveðnar þegar tímabilið er farið af stað en upplýsingar um það
verða engu að síður birtar fyrir áramót.
Í haust mun mótanefnd óska eftir því
að félög sendi inn hvaða mót þau hafa áhuga á að halda en nánari upplýsingar
verða sendar til formanna félaganna um það í ágúst.
Búið er að merkja inn á mótaskrá
æfingabúðir sem stefnt er á að halda með landsliði og unglingalandsliði á
haustönn. Einnig hafa verið merkt inn tvö erlend mót en endanleg ákvörðun um
það hvort BTÍ muni senda landsliðsfólk á þau mót verður tekin þegar nær dregur.
Drög þessi að mótaskrá eru birt með
fyrirvara um breytingar ef þörf krefur en það er von mótanefndar og annarra að
næstkomandi tímabil muni spilast án allra þeirra áskoranna sem fylgdu síðasta
keppnistímabili.
Meðfylgjandi
PDF skjal gefur yfirsýn yfir tímabilið skv. fyrstu drögum en það verður
ekki uppfært heldur verða mót færð inn á dagatalið/mótaskrá sem er að finna á
heimasíðu BTÍ.