Íslandsmót í flokkakeppni unglinga í borðtennis 2019 fer fram í Íþróttahúsi Hagaskóla helgina 16.-17. mars 2019. Borðtennisdeild KR er umsjónaraðili mótsins f. h. Borðtennissambands Íslands.
Aldursflokkar
Keppt verður í eftirtöldum aldursflokkum drengja og stúlkna, skv. reglugerð um flokkakeppni:
- Piltar og telpur fædd 2006 og síðar (13 ára og yngri)
- Sveinar og meyjar fædd 2004-2005 (14-15 ára)
- Drengir og stúlkur fædd 2001-2003 (16-18 ára)
Dagskrá
Sunnudagur 17. mars
10.00 Piltar fæddir 2006 og síðar
10.00 Telpur fæddar 2006 og síðar
13.00 Meyjar fæddar 2004-2005
13.00 Stúlkur fæddar 2001-2003
Skráning og þátttökugjöld
Þáttökugjald í flokkakeppnina er kr. 3.600 á lið. Greiðsla leggist inn á reikning Borðtennisdeildar KR: Bankareikningur: 0137-26-008312, kennitala 661191-1129. Greiðsla er staðfesting á þátttöku og skal þátttökugjaldið greiðast um leið og skráning en í síðasta lagi fyrir upphaf keppni. Tilkynning um greiðslu skal send á netfangið [email protected] og skal koma fram fyrir hvaða leikmann/lið er verið að greiða.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 13. mars kl. 20.00. Skráningum skal skilað á vef Tournament Software (http://www.tournamentsoftware.com/sport/tournament.aspx?id=F7338A7F-E3B5-4D44-BCA0-A9F334936C6C) en þar skal koma fram í hvaða flokkum eigi að skrá liðin sem greitt hefur verið fyrir og hvaða leikmenn skipa liðin. Ef ekki gengur að skrá lið í gegnum Tournament Software má senda tölvupóst til mótsstjórnar fyrir lok skráningarfrests.
Skila þarf kennitölu allra keppenda í síðasta lagi á mótsdag!
Bréf um mótið: Íslandsmót í flokkakeppni unglinga 2019