Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Evrópumót unglinga í Bratislava, Slóvakíu.

Unglingalandsliðið sem að þessu sinni er skipað þeim  Magnúsi Gauta Úlfarssyni og Kára Ármannssyni í cadet drengja og þeim Breka Þórðarsyni, Erlendi Guðmundssyni og Magnúsi Hjartarssyni í junior drengja heldur til Slóvakíu á morgun á Evrópumót unglinga með unglingalandsliðsþjálfaranum Kristjáni Viðari Haraldssyni og liðsstjóra Davíð Jónssyni.   Mótið er nú haldið í Bratislava  í Slóvakíu.  Liðakeppni hefst næstkomandi föstudag 10. júlí og stendur til þriðjudagsins 14. júlí.  Hefst þá keppni í einstaklingskeppninni sem lýkur sunnudaginn 19. júlí.

Í liðakeppni í cadet drengja spilar íslenska liðið í riðli með Hvíta Rússlandi, Svartfjallalandi og Noregi.

Í liðakeppni í junior drengja spilar íslenska liðið í riðli með Englandi, Hollandi og San Marinó.

Hægt verður að fylgjast með gengi þeirra á heimasíðu mótsins sem er að finna hér.  Einnig verða leikir sýndir á laola1.tv.

II

Aðrar fréttir