Evrópumótið í Búdapest Ungverjalandi. Davíð Jónsson keppir á morgun þriðjudaginn 18. október
Evrópumótið í einstaklingskeppni sem nú er haldið í Búdapest Ungverjalandi hefst í fyrramálið. Einn keppandi er frá Íslandi á mótinu, Davíð Jónsson, sem stundar nám og æfir í Slóvakíu.
Davíð leikur í riðli 1 (heildaryfirlit yfir riðla er að finna hér) sem lítur svona út:
Davíð leikur fyrsta leik sinn í fyrramálið kl 09.15 að íslenskum tíma við Trisan Flore frá Frakklandi. Næsti leikur has á morgun er svo við KHANIN Aliaksandr frá Hvíta Rússlandi kl. 11.30 að íslenskum tíma og að lokum kl. 16.30 að íslenskum tíma við ZATOWKA Patryk frá Póllandi. Á fimmtudaginn er svo leikur hans vð Marco Vannucci frá San Marinó. Ath linkur er á leiki við nöfnin í fréttinni hér að framan.