Ferð Hákons Atla Barkarsonar til Svíþjóðar á Stockholm Para Games 2.-3. nóvember 2019.
Uppgangur er í hjólastólaflokknum í borðtennis á Íslandi og fer þar nú fremstur í flokki Hákon Atli Barkarson úr ÍFR. Hefur Hákon verið duglegur síðustu misserin að sækja æfingar hjá öðrum félagsliðum en Bjarni Þorgeir Bjarnason þjálfari í HK hefur einnig verið með hann í einstaklingsæfingum.
Síðustu helgi tók Atli þátt í Para keppni í Stokkhólmi í Svíþjóð og gekk honum vel. Með honum til halds og trausts í ferðinni var Bjarni Þorgeir Bjarnason þjálfari.
Hákon Atli keppti í tvíliðaleik með Philip Brooks frá FIFH Malmö en var þetta fyrsta skipti sem þeir spiluðu saman.
Á leið í úrslitin mættu þeir liði frá Noregi en annar leikmanna þar var Sebastian Vegsund sem fékk brons í liðakeppni á EM síðastliðið sumar og vann hann þá einnig gull á Evrópumótinu undir 23 ára. Þeir Hákon Atli og Philip unnu þann leik örugglega 3-0 (13-11, 11-4 og 11-6).
Í úrslitum mættu þeir David Olsson og Isak Nyholm sem eru sænskir landsliðsmenn og taldir vera framtíð sænska liðsins í hjólastólakeppni. Þeir eru ríkjandi sænskir meistarar í tvíliðaleik og fengu silfur í liðakeppninni á Evrópumótinu undir 23 ára síðastliðið sumar.
Leikurinn var æsispennandi. Þeir Hákon Atli og Philip komust í 2-1 eftir að hafa unnið 11-4 og 13-11 og tapað 9-11. Í fjórðu lotunni var staðan 9-9 en svíarnir voru sterkari á endasprettinum, ákveðið spennufall þar. Í oddalotunni náðu þeir félagar sér ekki á strik og tóku Svíarnir hana 11-6.
Þrátt fyrir að Svíarnir hefðu haft betur að þessu sinni í úrslitaleiknum þá er árangur þeirra Hákons og Philip glæsilegur í flokknum.
Í opnun flokki á mótinu keppti Hákon Atli í performance 2 flokknum. Hann var óheppinn með drátt og lenti í riðli með tveimur standandi leikmönnum. Hákon lék vel en Gerry Roshdal sem vann opna flokkinn sigraði 3-1. Hinn leikurinn gegn Erik Prusakiewicz fór í oddalotu en Erik endaði í þriðja sæti í sínum standandi flokki.
Í flokki 4-5 fór Hákon Atli alla leið í undansúrlit. Þar mætti hann Isak Nyholm sem er sænskur landsliðmaður með rank nr. 14 í Evrópu í þeim flokki sem Hákon spilar í. Atli spilaði vel en sá sænski hafði betur 3-0 (11-9 ,11-4 og 11-6).
Árangur Hákons Atla á mótinu var frábær og ætlar hann að halda áfram stífum æfingum.
Næsta alþjóðlega mótið sem Hákon Atli ætlar á eru í febrúar og mars á næsta ári, nánar tiltekið Malmö Open og Costa Brava Para Open. Stefnir hann á að komast í æfingabúðir erlendis fyrir þann tíma.