Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fimm íslenskir unglingalandsliðsmenn í æfingabúðum í Noregi

Þessa dagana taka fimm íslenskir unglingalandsliðsmenn þátt í æfingabúðum í Noregi í boði norska borðtennissambandsins. Auk norskra og íslenskra leikmanna eru einnig sænskir unglingar í æfingabúðunum, sem standa frá 1. til 8. júlí.

Íslensku leikmennirnir eru Alexander Chavdarov Ivanov, BH, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, KR, Helena Árnadóttir, KR, Kristján Ágúst Ármann, BH og Lúkas André Ólason, KR.

Seinna í júlí fara svo Kristján og Lúkas í þriggja vikna æfingabúðir til Kína, en þeim bauðst pláss í ferð með hópi af norskum leikmönnum.
Davíð Jónsson, borðtennismaður úr KR, tekur líka þátt í þessum æfingabúðum.

Forsíðumyndina af hópnum tók Sindre Åteigen.

Aðrar fréttir