Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fimmtán nýir landsdómarar

Sunnudaginn 15. febrúar fór fram dómaranámskeið og landsdómarapróf í húsnæði ÍSÍ. Jóhannes Bjarki Urbancic, alþjóðadómari, hafði umsjón með námskeiðinu og prófinu.

15 af 17 þátttakendum náðu prófinu og öðlast þar með landsdómararéttindi BTÍ.

Nýju dómararnir koma úr ýmsum félögum og þar á meðal voru í fyrsta sinn dómarar frá BR. Meðal þeirra, og fleiri, var mikil ánægja með að boðið var upp á námskeiðið á blöndu á ensku og íslensku í fyrsta sinn. Þá eignaðist Ungmennafélagið Vísir einnig sína fyrstu landsdómara í borðtennis.

Dómararnir nýju eru eftirfarandi:

Anna Marczak – KR
Árni Árnason – KR
Helena Árnadóttir – KR
Hrefna Namfa Finnsdóttir – KR
Atli Már Björnsson – Umf. Vísi
Bjarni Malmquist Jónsson – Umf. Vísi
Sigrún Elfa Bjarnadóttir – Umf. Vísi
Ibrahim Hossam Al-Masry – BR
Krystian May-Majewski – BR
Piotr Herman – BR
Sindri Þór Rúnarsson – BH
Almar Elí Ólafsson – Umf. Selfoss
Rubén Illera López – Umf. Selfoss
Sveinbjörn Ari Gunnarsson – Umf. Selfoss
Emil Freyr Magnússon – Víkingi

Borðtennissambandið óskar nýju dómurunum til hamingju og góðs gengis í störfum sínum.

Myndin er frá námskeiðinu en hana tók Auður Tinna Aðalbjarnardóttir.

Aðrar fréttir