Fjögur borðtennismót 25.-28. apríl
Fjögur borðtennismót eru á dagskránni 25.-28. apríl. Á fréttasíðunni og í dagatalinu eru auglýsingar um hvert mót fyrir sig. Mótin eru:
Styrkleikamót Dímonar á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl kl. 11 í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Skráningu lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 20. Nánari upplýsingar:
Íslandsmót öldunga, laugardaginn 27. apríl í TBR-húsinu kl. 10. Skráningu lýkur miðvikudaginn 24. apríl kl. 17. Nánari upplýsingar:
Lokamót Grand Prix, laugardaginn 27. apríl í TBR-húsinu kl. 12:30. Mótið er boðsmót þar sem átta stigahæstu leikmönnunum á mótaröðinni er boðið. Nánari upplýsingar:
Aldursflokkamót KR sunnudaginn 28. apríl kl. 11 í Íþróttahúsi Hagaskóla. Skráningu lýkur þriðjudaginn 23. apríl kl. 22. Nánari upplýsingar:
ÁMU