Fjórir einstaklingsleikur unnust á fyrsta degi NETU
Íslensku leikmennirnir unnu fjóra einstaklingsleiki á fyrsta keppnisdegi á Norður-Evrópumóti unglinga (NETU), sem fram fer í Haapsalu í Eistlandi 26.-28. júní. Þrír þessara leikja unnust í drengjaflokki og einn í sveinaflokki. Að svo stöddu kemur ekki fram á vef mótsins hvaða leikmenn unnu þessa leiki en þein upplýsingum verður bætt hér inn þegar það er ljóst.
Miðvikudaginn 26. júní var keppt í liðakeppni og eru fjögur íslensk lið skráð til leiks á mótinu, eitt í hverjum flokki.
Úrslit úr einstökum landsleikjum Íslands
Drengir 16-18 ára (junior drengir)
- Ísland – Litháen 2-3
- Ísland – Eistland-I 0-3
- Ísland – Lettland 1-3
Alls eru 6 lið í þessum flokki og leika öll innbyrðis í einum riðli.
Stúlkur 16-18 ára (junior stúlkur)
- Ísland – Eistland-I 0-3
- Ísland – Lettland 0-3
Í þessum flokki eru 5 lið og leika öll innbyrðis í einum riðli.
Sveinar 15 ára og yngri (kadett drengir)
- Ísland – Finnland 0-3
- Ísland – Lettland-I 1-3
Í þessum flokki eru 11 lið og leika í þremur riðlum. Ísland var í þriggja liða riðli og hefur lokið keppni í riðlinum. Þann 27. júní er leikið um einstök sæti og mætir Ísland fyrst Finnlandi-II. Með sigri leikur Ísland um 7. sætið en tapi liðið leikur það um 9. sætið.
Meyjar 15 ára og yngri (kadett stúlkur)
- Ísland – Finnland 0-3
- Ísland – Lettland 0-3
- Ísland – Litháen 0-3
Alls eru 6 lið í þessum flokki og leika öll innbyrðis í einum riðli.
Keppni í liðakeppni lýkur 27. júní og þá hefst keppni í einliðaleik. Henni lýkur svo 28. júní.
Fylgst er með gengi íslensku leikmannanna á fésbókarsíðu BTÍ. Þar má líka sjá mynd af flottu stigi í leik hjá Ellert Georgssyni.
Mynd af íslenska hópnum tekin af fésbókarsíðu BTÍ.