Forgjafarmót Mattia 30. júní
Mattia Contu, unglingalandsliðsþjálfari, heldur síðasta forgjafarmót sitt á þessu keppnistímabili í Íþróttahúsi Hagaskóla sunnudaginn 30. júní. Mótið hefst kl. 10 en húsið opnar kl. 9. Mótið er opið öllum.
Smávægilegar breytingar verða gerðar á útreikningi á styrkleikastigum kvenna miðað við karla frá síðasta móti.
Fyrirkomulag forgjafar verður á þennan hátt:
Litið verður á styrkleikastig kvenna þannig að þær hafi 250 stigum færri stig en þær eru með.
Stig á forgjafarmótinu = Stig á styrkleikalista – 250
Karlar gegn körlum og konur gegn konum
Ef mismunur á stigum er frá 0 til 50, fær leikmaðurinn með færri stig á styrkleikalistanum 1 stig í forgjöf í hverri lotu.
Ef mismunur á stigum er frá 51 til 100, er forgjöfin 2 stig
Ef mismunur á stigum er frá 101 til 160, er forgjöfin 3 stig
Ef mismunur á stigum er frá 161 til 270, er forgjöfin 4 stig
Ef mismunur á stigum er frá 271 til 420, er forgjöfin 5 stig
Ef mismunur á stigum er frá 421 til 700, er forgjöfin 6 stig
Ef mismunur á stigum er meiri en 700 stig er forgjöfin 7 stig.
Skráningar sendist í tölvupósti á [email protected]. Setjið BALANCED TOURNAMENT 30 JUNE í efnislínuna. Í póstinum á nafn leikmanns, félag og styrkleikastig að koma fram. Skráningarfrestur er til kl. 21 þann 29. júní.
Þátttökugjald er 2.000 kr. Af þeim verða 1.000 kr. notaðar í verðlaunafé, sem verður skipt á milli verðlaunahafa á þennan hátt:
Ef eru 10 leikmenn eða færri eru aðeins veitt ein verðlaun.
Ef leikmenn eru allt að 15 verða veitt tvenn verðlaun (66% fara til sigurvegarans, 33% til þess sem verður í öðru sæti).
Ef leikmenn eru fleiri en 15 eru veitt þrenn verðlaun (50% fara til sigurvegarans, 30% til þess sem verður í öðru sæti og 20% til þess sem verður í þriðja sæti).
Forsíðumynd af fésbókarsíðu BTÍ.