Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Fyrirlestur sjúkraþjálfara fyrir landsliðshópa og þjálfara, BTÍ

Fimmtudaginn 24. nóvember nk. kl. 18.00 verður haldinn fyrirlestur sjúkraþjálfara á vegum BTÍ í sal BH í Strandgötunni í Hafnarfirði.  Fyrirlesari verður Þórhalla Andrésdóttir löggiltur sjúkraþjálfari og líkamsræktarþjálfari.  Mun Þórhalla m.a. fjalla um rétt jafnvægi í æfingum, mikilvægi æfinga utan æfinga við borðtennisborðið, ofþjálfun og hvernig best sé að bregðast við álagsmeiðslum.  Mun hún jafnframt opna fyrir spurningum úr sal.

Fyrirlesturinn er fyrir landsliðshópa fullorðinna og unglinga, þjálfara félaga innan BTÍ og eru formenn félaganna einnig velkomnir á fundinn.

BTÍ vonast til þess að flestir sjái sér fært um að mæta.

Aðrar fréttir