Fyrsta Grand Prix mót ársins! Laugardagurinn 5. nóv. TBR húsið.
Þá er komið að því!
Fyrsta Grand prix mót vetrarins verður haldið í TBR húsinu laugardaginn 5. nóvember nk. Skipuleggjandi mótsins er borðtennisdeild Víkings. Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna í einföldum úrslætti (fjórar lotur unnar). Leikið verður einnig í B keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.