Gangur Kára með liði Horreds BTK í Svíþjóð.
Kári ásamt liðsfélögum og þjálfara í Svíþjóð.
Kári spilaði nú um helgina með félagsliði sínu Horreds BTK í Svíþjóð sem berst í vetur fyrir því að komast upp í 2. deildina. Var Kári fenginn til liðsins til að efla það. Á föstudeginum flaug hann út og gisti í Horred um nóttina. Um morguninn kl. 06.00 var lagt af stað í strangt ferðalag (200 km. akstur fyrst) þar sem spilað var um morguninn við lið Huskvarna (sem fyrirfram var talið sterkasta liðið í deildinni) og í kjölfarið lið Bankeryd.