Gengi íslenska karlaliðsins á Norður Evrópumótinu í dag – Magnús Gauti kominn í 16 manna úrslit í einstaklingskeppni karla
Drengirnir okkar spiluðu í dag í liðakeppninni. Voru þeir í riðli með Noregi, Finnlandi og Grænlandi. Endaði liðið í 3. sæti í riðlinum en þeir töpuðu gegn Noregi og Finnlandi 3-0 en unnu Grænland 3-0. Í dag voru einnig undanriðlar í einstaklingskeppninni. Magnús Gauti Úlfarsson komst upp úr riðli og leikur hann í fyrramálið í 16 manna úrslitum við Alex Naumi frá Finnlandi. Þeir Magnús Gauti og Davíð Jónsson munu einnig taka þátt í tvenndarkeppninni en þeir munu spila með stúlkum frá Noregi.
Hér að neðan eru tvær myndir af mótinu í dag og taflan í 16 manna úrslitum í einliðaleik karla.