Gott gengi Guðmundar Stephensen með Eslöv í Svíþjóð, leikir dagsins.
Guðmundur Stephensen lék í dag með liði sínu Eslöv gegn Malmö IF í sænsku 1. deildinni í tveimur leikjum. Endaði leikurinn gegn Malmö IF 8-1 fyrir Eslöv. Sigraði Guðmundur í einliðaleik gegn Samuel Roos, 11-4, 11-8 og 11-6 og gegn Benjamin Ljungberg11-3,11-5 og 11-9. Í tvíliðaleik lék hann með Pontus Frithiof og unnu þeir leik sinn gegn þeim Javid Eil og Samuel Ross 11-7, 9-11, 11-6 og 11-9.
Þá lék Eslöv einnig gegn liði Kvibille og var það hörkuleikur þar sem Guðmundur sigraði alla þrjá einliðaleiki sína. Vannst leikurinn 8-5. Sætastur var sigurinn gegn Fredrik Hakansson sem hann sigraði 3-2 eftir að hafa verið 2-0 undir.