Grand Prix mót BH sunnudaginn 10. febrúar nk.
Grand Prix mót Borðtennisdeildar BH mun fara fram sunnudaginn 10. febrúar 2019 í stóra salnum í Íþróttahúsinu við Strandgötu, Strandgötu 53, Hafnarfirði. Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna.
Dagskrá og fyrirkomulag:
Opinn flokkur karla kl. 12:00 Opinn flokkur kvenna kl. 13:30. Húsið opnar kl. 10:30.
Þátttökugjald er 1.500 krónur. Hægt er að greiða á staðnum eða leggja inn á reikning BH: Kt: 620709-0180, Reikningsnúmer: 0544-26-16207 Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected]
Skráningarfrestur rennur út föstudaginn 8. febrúar nk. kl. 17.00
Mótsstjórn skipa Tómas Ingi Shelton og Jóhannes Bjarki Urbancic.
Yfirdómari verður auglýstar síðar.
Skráningar og spurningar berist til [email protected]
Auglýsingu um mótið er að finna hér.