Grand Prix mót Borðtennisdeildar BH
Grand Prix mót Borðtennisdeildar BH var haldið í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði laugardaginn 18. febrúar. Í karlaflokki voru 19 keppendur og í kvennaflokki 4 frá BH, KR og Víkingi. Glæsileg verðlaun voru á mótinu en í aðalverðlaun í karlaflokki var helgargisting fyrir tvo með morgunmat á Hótel Djúpavík og í kvennaflokki leikhúsmiðar fyrir tvo í Borgarleikhúsið. Aukaverðlaun voru gjafabréf á Hamborgarafabrikkuna.
Í karlaflokki sigraði Magnús Gauti Úlfarsson úr BH og í kvennaflokki Aldís Rún Lárusdóttir úr KR. Magnús Gauti sigraði í úrslitaleik Magnús Jóhann Hjartarsson úr Víkingi 4-0 (11-3, ,11- 8, 11-5 og 11-4). Aldís sigraði í úrslitaleik Auði Tinnu Aðalbjarnardóttur úr KR 4-0 (11-6,,11-3, 11-6 og 11-5 ).
Í B keppni karla sigraði Tómas Shelton úr BH og í B keppni kvenna sigraði Þórunn Á Árnadóttir Víkingi.
Verðlaunahafar í einstökum flokkum voru eftirfarandi:
Opinn flokkur karla
1. Magnús Gauti Úlfarsson BH
2. Magnús Jóhann Hjartarsson Víkingur
3.-4. Jóhannes Bjarki Urbancic BH
3.-4. Ingólfur Sveinn Ingólfsson KR
Opinn flokkur kvenna
1. Aldís Rún Lárusdóttir KR
2. Auður Tinna Aðalbjarnardóttir KR
3.-4. Þórunn Á Árnadóttir Víkingi
3.4. Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingi
B keppni karla
1. Tómas Ingi Shelton BH
2. Sindri Þór Sigurðsson Víkingur
3. Reynir Snær Skarphéðinsson BH
4. Ingi Brjánsson KR
B keppni kvenna
1. Þórunn Á. Árnadóttir Víkingi
2. Stella Karen Kristjánsdóttir Víkingi
Úrslit úr einstökum viðureignum á mótinu eru aðgengileg á vef Tournament Software hér.
Sigurvegarar í opnum flokki karla
Sigurvegarar í opnum flokki kvenna
Sigurvegarar í B keppni karla
Sigurvegarar í B keppni kvenna