Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix mót HK 16. nóvember

Grand Prix mót HK fer fram í íþróttamiðstöðinni Fagralundi laugardaginn 16. nóvember næstkomandi. Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna. Leikinn er einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar. Einnig verður B-keppni fyrir þá keppendur sem detta út í 1. umferð.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:

  • Laugardagur 16. nóv kl. 11:00: Opinn flokkur kvenna
  • Laugardagur 16. nóv kl. 12:00: Opinn flokkur karla

Þátttökugjald í mótið er kr.1000-. Hægt er að greiða keppnisgjöld inn á reikning 536-26-5337 kt. 6309810269, 1.000 kr. Muna að setja kennitölu keppanda í skýringu með greiðslu.

Yfirdómari: Bjarni Þ. Bjarnason

Mótanefnd: Örn Þórðarson, Magnús Bollason, Kristján R. Hjartarson

Síðasti skráningardagur er 15. nóv kl. 18:00. Dregið verður í íþróttahúsi Snælandsskóla 15. nóv. kl 18:30. Skráning fer fram á https://tournamentsoftware.com. Ef það gengur ekki þá er hægt að skrá hér: vara-skráningarform

Leikið verður með 3ja stjörnu kúlum.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.

Bréf um mótið:

Aðrar fréttir