Grand Prix mót HK 2014
Grand Prix mót HK fer fram í íþróttamiðstöðinni Fagralundi laugardaginn 15. nóvember næstkomandi. Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna. Leikinn er einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar. Einnig verður leikið B-keppni fyrir þá keppendur sem detta út í 1. umferð.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 15. nóv kl. 11:00: Opinn flokkur kvenna
Laugardagur 15. nóv kl. 12:00: Opinn flokkur karla
Þátttökugjald í mótið er kr.1000-
Hægt er að greiða keppnisgjöld inná reikning 536-26-5337 kt. 6309810269, 1.000 kr. Muna að setja kennitölu keppanda í skýringu með greiðslu.
Yfirdómari: Bjarni Þ. Bjarnason
Síðasti skráningardagur er 14. nóv kl. 17:00. Eingöngu er tekið á móti rafrænum skráningum með því að smella á eftirfarandi tengil: http://goo.gl/forms/Pb4UUw447G
Leikið verður með 3ja stjörnu DHS kúlum
Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.
Borðtenniskveðja
Borðtennisdeild HK.