Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Grand Prix mót HK laugardaginn 10. nóvember 2018

Grand Prix mót HK fer fram í íþróttamiðstöðinni Fagralundi laugardaginn 10. nóvember næstkomandi. Leikið verður í opnum flokki karla og kvenna. Leikinn er einfaldur útsláttur, fjórar lotur unnar. Einnig verður B-keppni fyrir þá keppendur sem detta út í 1. umferð.

Auglýsing um mótið er aðgengileg hér: Grand Prix HK_2018.

Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 10. nóv kl. 11:00: Opinn flokkur kvenna Laugardagur 10. nóv kl. 12:00: Opinn flokkur karla

Þátttökugjald í mótið er kr.1000-
Hægt er að greiða keppnisgjöld inná reikning 536-26-5337 kt. 6309810269, 1.000 kr. Muna að setja kennitölu keppanda í skýringu með greiðslu.

Yfirdómari: Bjarni Þ. Bjarnason

Mótanefnd: Brynjólfur Þórisson Magnús Bollason Kristján R. Hjartarson

Síðasti skráningardagur er 9. nóv kl. 18:00. Dregið verður í íþróttahúsi Snælandsskóla 9. nóv. kl 18:30. Skráning fer fram á https://tournamentsoftware.com. Ef það gengur ekki þá er hægt að skrá hér:

Leikið verður með 3ja stjörnu kúlum Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 4 sætin.

 

II, uppfært ÁMU

Aðrar fréttir