Grand Prix mót Víkings og Pepsi verður haldið 31. október
Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 31. október 2015 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings. Keppt verður í Opnum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar.
Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í Opnum flokki karla og kvenna.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 31. okt: kl. 12:00 Opinn flokkur karla
“ “ kl. 12:30 Opinn flokkur kvenna
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 29. október 2015 kl. 18:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected],
Bréf um mótið: Grand prix Pepsi 31 okt 2015
ÁMU