Grand Prix mót Víkings verður 5. nóvember
Grand Prix mót Pepsi fer fram í TBR-Íþróttahúsinu laugardaginn 5. nóvember 2016 í umsjá Borðtennisdeildar Víkings. Keppt verður í opnum flokkum karla og kvenna. Leikinn verður einfaldur úrsláttur, fjórar lotur unnar. Leikið verður með hvítum 3ja stjörnu kúlum.
Leikið verður einnig í B – keppni fyrir þá keppendur sem tapa í 1. umferð í opnum flokki karla og kvenna.
Þátttökugjald í mótið er kr. 1.000-
Yfirdómari: Árni Siemsen
Mótstjórn skipa: Pétur Ó. Stephensen, Daði Freyr Guðmundsson.
Dagskrá mótsins er eftirfarandi:
Laugardagur 5. nóv: kl. 12:00 Opinn flokkur karla
“ “ kl. 12:30 Opinn flokkur kvenna
Síðasti skráningardagur er fimmtudagur 3. nóv 2016 klukkan 18:00, en dregið verður í mótið í TBR-Íþróttahúsinu.
Skráningar berist til Péturs Ó. Stephensen s-8940040/[email protected],sms
Bréf um mótið: grand-prix-pepsi-5-nov-2016
Ekki verður haldið aldursflokkamót þann 5. nóvember, eins og fram kom á mótaskrá.
ÁMU