Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Guðbjörg Vala fékk silfur í flokki 16 ára á Halmstad Masters

Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir og Helena Árnadóttir úr KR, Kristján Ágúst Ármann úr BH og Matthías Þór Sandholt tóku þátt í Halmstad Masters 2026 mótinu, sem fram fór 28.-30. ágúst.

Guðbjörg Vala komst á verðlaunapall þegar hún varð í 2. sæti í flokki stúlkna 16 ára og yngri (Damjunior 16) en hún tapaði 1-3 í úrslitum gegn Nike Lundquist frá Söderhamns UIF.
Guðbjörg Vala varð líka í 5.-8. sæti í flokki Damer 20 og 17.-32. sæti í flokki Damjunior 18.

Helena varð í 17.-32. sæti í flokki Damer 20.

Kristján hafnaði í 33.-64. sæti í flokknum Pojkar 16.

Matthías varð í 33.-64. sæti í Herre singel flokki.

Hér má sjá úrslit úr leikjum á mótinu: https://pingisdata.se/tavlingar/a1d4e9bd5a96bc6ddea02ca10e2ced24f9aa0a6680fef845fb0565fb257186a8/

Forsíðumynd frá Guðrúnu Gestsdóttur.

Aðrar fréttir