Guðbjörg Vala sigraði í challenge einliðaleik stúlkna U17 ára
Keppni lauk á 25. Youth championships í Linz í Austurríki mánudaginn 6. apríl með síðustu leikjunum í einliðaleik.
Keppendur Íslands léku ýmist í huggunarkeppni („consolation“) fyrir þau þrjú (Benedikt, Helenu og Lúkas) sem komust í „championship“ útsláttarkeppnina, eða í „challenge“ keppni, fyrir þau sem höfnuðu í 3.-4. sæti í riðlunum. Einnig var boðið upp á „challenge consolation“ fyrir leikmenn sem duttu snemma út í „challenge“ keppninni.
Úrslit dagsins:
Undir 19 ára drengir:
Alexander Ivanov lagði belgískan leikmann 3-0 í 16 manna úrslitum í „challenge“ útslættinum. Hann fékk síðan gefins sigur gegn svissneskum dreng í 8 manna úrslitum en þurfti svo sjálfur að gefa sinn leik í undanúrslitum gegn tékkneskum leikmanni vegna veikinda. Hann lauk því keppni í 3.-4. sæti í „challenge“ útslættinum.
Benedikt Aron Jóhannsson tapaði 1-3 fyrir leikmanni frá Tékklandi í 32 manna úrslitum í „consolation“ útslættinum.
Undir 17 ára stúlkur:
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir lagði stúlku frá Austurríki 3-0 í 8 manna úrslitum í „challenge“ útslættinum og sænska stúlku 3-0 í undanúrslitum. Í úrslitum lagði hún stúlku frá Wales 3-1.
Helena Árnadóttir sigraði stúlku frá Lúxemborg 3-1 í 8 manna úrslitum í „consolation“ útslættinum en féll úr leik í undanúrslitum með 0-3 tapi gegn þýskri stúlku.
Undir 17 ára drengir:
Kristján Ágúst Ármann sigraði austurrískan leikmann 3-0 í 32 manna úrslitum í „challenge“ útslætti. Næst mætti hann leikmanni frá Lúxemborg og sigraði hann 3-2. Í 8 manna úrslitum féll Kristján úr leik með 0-3 tapi gegn leikmanni frá Austurríki.
Heiðar Leó Sölvason sigraði hollenskan leikmann 3-1 í 16 manna úrslitum í „challenge consolation“ útslættinum en datt út í 8 manna úrslitum með 0-3 tapi gegn leikmanni frá Þýskalandi.
Viktor Daníel Pulgar vann leikmann frá Danmörku 3-2 í 16 manna úrslitum í „challenge consolation“ útslættinum en féll úr leik í 8 manna úrslitum með 0-3 tapi gegn dreng frá Þýskalandi.
Undir 15 ára sveinar:
Lúkas André Ólason sigraði þýskan leikmann 3-0 í 32 manna úrslitum í „consolation“ útslættinum. Í 16 manna úrslitum lagði hann leikmann frá Óman 3-1. Hann datt úr leik með 0-3 tapi gegn þýskum leikmanni í 8 manna úrslitum.
Hinir norsku félagar íslensku leikmannanna náðu ágætum árangri. Jörgen Gravseth féll úr leik í 16 manna úrslitum í „consolation“ útsláttarkeppninni í flokki sveina undir 15 ára. Lasse Brekkebråten féll úr leik í 8 manna „championship“ úrslitum í flokki drenga undir 17 ára.
Öll úrslit á mótinu má sjá hér: https://www.ttm.co.at/results/ayo2026/?fbclid=IwY2xjawRAn7xleHRuA2FlbQIxMABzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEeoilO4qTncESFmd8TctzEYqzXhVclA_ksHnwtzjyUwzgrVhM2heWfEDX-qIU_aem_Gl7sX1GGc5JXrEkPpWR9mQ
Á forsíðumyndinni, sem Sindre tók, má sjá Guðbjörgu Völu á verðlaunapalli eftir sigur í „challenge“ flokki stúlkna undir 17 ára.
Liðsmyndirnar tók Gunnar Skúlason.

Stúlknaliðið undir 17 ára aldri

Ísland 2 í flokki drengja undir 17 ára


