Guðbjörg Vala sigraði í þremur flokkum í Hróarskeldu
Hópur íslenskra leikmanna tók þátt í Spar Nord Roskilde Cup um síðustu mánaðarmót. Á mótinu var keppt í fjölmörgum aldursflokkum og styrkleikaflokkum. Flestir leikmenn komu úr KR en einnig léku Benedikt Aron Jóhannsson, Víkingi, Magnús Gauti Úlfarsson, BH og Sól Kristínardóttir Mixa, BH á mótinu.
Leikmenn KR voru þau Anna Marczak, Eiríkur Logi Gunnarsson, Ellert Kristján Georgsson, Gestur Gunnarsson, Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, Guðrún Gestsdóttir, Helena Árnadóttir, Hrefna Namfa Finnsdóttir, Karl A. Claesson, Lúkas André Ólason, Marta Dögg Stefánsdóttir, Pétur Xiaofeng Árnason, Viktor Daníel Pulgar og Þórunn Erla Gunnarsdóttir.
Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir, sigraði í þremur flokkum á mótinu, í flokkum Dame Elite, Dame U21 Elite og Dame Junior Elite.
Magnús Gauti Úlfarsson, sigraði í tveimur flokkum, í flokki Åben A og Herre Klasse 1. Magnús Gauti varð svo í 5.-8. sæti í flokki Herre Elite, þar sem hann féll úr leik fyrir Allan Bengtson, sem sigraði í flokkum.
Benedikt Aron Jóhannsson sigraði í flokki Herre U21 Elite og varð í 9.-16. sæti í flokki Herre Junior Elite.
Karl A. Claesson, sigraði í Herre Klasse 3.
Viktor Daníel Pulgar sigraði í flokki Herre U21 C.
Lúkas André Ólason varð í 2. sæti í flokki Drenge Elite, í 5.-8. sæti í flokki Herre U21 Elite og í 9.-16. sæti í flokki Herre Klasse 2.
Sól Kristínardóttir Mixa varð í 3. sæti í flokki Dame U21 Elite.
Helena Árnadóttir varð í 4. sæti í flokki Dame Elite og 6. sæti í flokki Dame U21 Elite.
Eiríkur Logi Gunnarsson varð í 3.-4. sæti í flokki Åben A og hafnaði í 5.-8. sæti í flokki Herre U21 Elite.
Marta Dögg Stefánsdóttir varð í 3.-4. sæti í flokki Dame Klasse 1.
Gestur Gunnarsson hafnaði í 5.-6. sæti í flokki Åben A og varð í 9.-16. sæti í flokki Herre Klasse 1.
Ellert Kristján Georgsson varð í 5.-8. sæti í flokki Åben B og í 9.-16. sæti í flokki Herre Elite og Herre Klasse 1.
Guðrún Gestsdóttir hafnaði í 5.-8. sæti í flokki Herre Klasse 7.
Þórunn Erla Gunnarsdóttir varð í 9.-16. sæti í flokki Herre Junior D.


Myndir frá Borðtennisdeild KR og á forsíðumyndinni má sjá bróðurpart leikmanna KR á mótinu.


