Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Guðbjörg Vala vann leik í einliðaleik og Lúkas varð í 9.-14. sæti

Sunnudaginn 28. júní lauk keppni á Norður-Evrópumóti unglinga í Eistlandi. Leikið var upp úr riðlum í einliðaleik með einföldum útslætti. Guðbjörg Vala Gunnarsdóttir var eini íslenski leikmaðurinn sem vann leik, þegar hún lagði stúlku í 16 manna úrslitum tapmegin í töflunni.

U15 sveinar
Lúkas André Ólason var eini íslenski leikmaðurinn sem komst í 16 manna úrslit. Hann tapaði 1-3 fyrir Frank Josefsson frá Svíþjóð í 16 manna úrslitum, og var þar með úr leik. Sá sænski komst í undanúrslit áður en hann féll úr leik.

Lúkas hafnaði í 9.-14. sæti, þar sem 14 leikmenn voru í raun sigurvegaramegin í útsláttartöflunni en ekki 16.
Benedikt Darri tapaði 0-3 fyrir eistneskum leikmanni varð í 23.-28. sæti.

U19 stúlkur
Guðbjörg Vala vann stúlku frá Eistlandi 3-0 en tapaði næsta leik 1-3 fyrir annarri eistneskri stúlku.
Helena tapaði 0-3 fyrir eistneskum leikmanni og Þórunn tapaði 0-3 fyrir sænskri stúlku.
Marta sat hjá í 1. umferð í útsláttarkeppninni en tapaði svo 0-3 fyrir stúlku frá Eistlandi.

Guðbjörg Vala og Marta ljúka því kepnni í 21.-24. sæti og Helena og Þórunn í 25.-30. sæti.

U19 drengir
Kristján Ágúst Ármann og Viktor Daníel Pulgar lentu saman í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og sigraði Kristján 3-1. Hann tapaði svo 1-3 fyrir dreng frá Lettlandi.
Alexander Chavdarov Ivanov tapaði 1-3 fyrir dreng frá Eistlandi og Heiðar Leó Sölvason tapaði 1-3 fyrir leikmanni frá Litháen.

Kristján lýkur því keppni í 21.-24. sæti og hinir íslensku leikmennirnir í höfnuðu í sætum 25-30.

Hluti hópsins heldur til Noregs frá Eistlandi, þar sem þau taka þátt í æfingabúðum með norska unglingalandsliðinu.

Á forsíðumyndinni má sjá íslensku leikmennina á mótinu, mynd frá Sindre Åteigen.

Aðrar fréttir