Guðmundur Stephensen lék með Zoetermeer í 2. umferð í Evrópukeppni félagsliða um helgina
Guðmundur Stephensen lék með liði sínu Enjoy & Deploy Zoetermeer í 2. umferð í Evrópukeppni félagsliða (ETTU cup) um helgina. Leikið var í riðli sem fór fram á heimavelli DKV Borges Val á Spáni.
Spænska heimaliðið vann alla sína leiki og kemst áfram í 3. umferð. Stavoimpex Holic frá Slóvakíu varð í 2. sæti, Istanbul BBSK frá Tyrklandi í 3. sæti og Zoetermeer hafnaði í fjórða og neðsta sæti.