Guðmundur Stephensen og félagar komnir í úrslit í Hollandi
Guðmundur Stephensen og liðsfélagar hans í Enjoy&Deploy Zoetermeer sigruðu Pay Pro.nl/DTK’70 6-1 í seinni undanúrslitaleiknum um hollenska deildarbikarinn í borðtennis í gær. Guðmundur lék tvo einliðaleiki og tvíliðaleik og vann þá alla.
Guðmundur og félagar mæta Wijzenbeek/Westa í úrslitunum 17. desember.
ÁMU