Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Guðmundur tók lið sitt upp í Superettan í Svíþjóð.

Ljósmynd:  Jóhann Emil Bjarnason

Guðmundur Stephensen gerði í dag gott mót í sænsku deildinni þegar lið hans Eslöv vann lið Asa í sænsku 1. deildinni 8-1.  Með sigrinum komst liðið upp í Superettan, sem er næst efsta deildin í Svíþjóð.  Þarf Asa að fara í umspil við önnur lið til að fylgja með.  Eslöv styrkti lið sitt verulega á síðustu metrum deildarkeppninnar og fékk þá Guðmund í liðið en  í dag vann Guðmundur báða leiki sína.  Þann fyrri 3-2 og þann seinni 3-0.   Guðmundur sem Svíarnir kalla „Gummi“  lék með danska landsliðsmanninum Kasper Sternberg og  þeimJacob Asmusen, Filip Wirström, David Blomberg og Pontus Frithiof.

Frábært að sjá Gumma spila aftur.

Aðrar fréttir