Guðrún og Kári borðtennisfólk KR og Guðrún íþróttakona KR
Tilkynnt var um val á borðtennisfólki KR á aðalfundi KR 26. apríl. Guðrún G Björnsdóttir var valin borðtenniskona KR og jafnframt íþróttakona KR, hvort tveggja þriðja árið í röð.
Kári Ármannsson var valinn borðtennismaður KR og er það í fyrsta skipti sem hann verður fyrir valinu.
Þá var Pétur Gunnarsson, borðtennismaður með meiru, valinn handknattleiksmaður KR.
ÁMU