Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Gunnar Snorri leikur með Mölndals BTK í Svíþjóð

Í upptalningu á íslenskum leikmönnum í sænsku deildakeppninni (sjá frétt frá 10. september) gleymdist að geta Gunnars Snorra Ragnarssonar, borðtennismanns úr KR, sem hefur búið í Svíþjóð í nokkur ár. Gunnar Snorri leikur í A-liði Mölndals BTK, og tryggði liði sínu nýlega sigur í deildarleik, þar sem hann vann oddalotu 17-15, og liðið vann því leikinn 8-6.

Klippa af lokastiginu: https://www.instagram.com/reel/CxiwqkstS1s/?igshid=NjIwNzIyMDk2Mg%3D%3D

Forsíðumynd af liðinu, Gunnar Snorri er lengst til vinstri.

Aðrar fréttir