Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Heimsóknir í skóla á Vesturlandi

Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, formaður BTÍ og borðtennisþjálfari, heimsótti tvo skóla á Vesturlandi þann 23. september, Auðarskóla í Dalabyggð og Reykhólaskóla. Heimsóknin var hluti af íþróttaviku Evrópu og fékk BeActive styrk.

Í Auðarskóla voru þátttakendur um 60 talsins en um 30 á Reykhólum. Í báðum skólum var borðtennistímunum skipt í þrennt, fyrir yngsta stig, miðstig og unglingastig.

Meðfylgjandi eru myndir frá heimsókninni frá Auði.

Aðrar fréttir