Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Héraðsmót í borðtennis 2026

51. héraðsmót HSK í borðtennis verður haldið í íþróttahúsinu á Hvolsvelli sunnudaginn 22. mars 2026.

Keppni hefst kl.10:00 hjá yngstu tveimur flokkunum (13 ára og yngri), kl. 12:00 hjá næstu tveimur (14-17 ára) og klukkan 14:00 hjá eldri flokkunum (18 ára og eldri)

Flokkaskipting:

Keppt verður í eftirtöldum karla- og kvennaflokkum, miðað er við almanaksárið:

  • 40 ára og eldri (1986 og fyrr
  • 18 – 39 ára (2008 – 1987)
  • 16 – 17 ára (2009- 2010)
  • 14 – 15 ára (2011 – 2012)
  • 12 – 13 ára (2013 – 2014)
  • 11 ára og yngri (2015 og síðar)

Skráningarfrestur:
Skráningar þurfa að berast til nefndarmanna í borðtennisnefnd HSK í síðasta lagi föstudaginn 20. mars nk. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á [email protected]

Þátttökugjald:
Þátttökugjald fyrir 12 ára og eldri er kr. 1000 á skráð nafn í grein og kr. 500 fyrir 11 ára og yngri. Innifalið í þátttökugjaldi eru borðtenniskúlur sem notaðar verða á mótinu.

Verðlaun:
Fjórir fyrstu í hverri grein hljóta verðlaunapening og stigahæsta félag hlýtur farandgrip. Allir 11 ára og yngri fá þátttökuverðlaunapening.

Þátttakendur mæta með eigin borðtennisspaða á mótið.

Borðtennisnefnd HSK

Aðrar fréttir