Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Héraðsmóti í borðtennis á Hvolsvelli

49. héraðsmót HSK í borðtennis verður haldið á Hvolsvelli fimmtudaginn 25. apríl 2024.

Keppni hefst kl. 11:00 í yngri flokkum. Keppni hjá eldri flokkum hefst kl. 13:30.

Flokkaskipting:

Keppt verður í eftirtöldum karla- og kvennaflokkum, miðað er við almanaksárið:

  • 40 ára og eldri (1984 og fyrr)
  • 18 ára og eldri (2006 og  fyrr)
  • 16 – 17 ára (2007- 2008)
  • 14 – 15 ára (2009 – 2010)
  • 12 – 13 ára (2011 – 2012)
  • 11 ára og yngri (2013 og síðar)

Skráningarfrestur:

Skráningar þurfa að berast til nefndarmanna í borðtennisnefnd HSK í síðasta lagi þriðjudaginn 23. apríl nk. Vinsamlegast  tilkynnið þátttöku með tölvupósti á [email protected] eða [email protected].

Þátttökugjald:

Þátttökugjald fyrir 12 ára og eldri er kr. 1000 á skráð nafn í grein og kr. 500 fyrir 11 ára og yngri. Innifalið í þátttökugjaldi eru borðtenniskúlur sem notaðar verða á mótinu.

Verðlaun:

Fjórir fyrstu í hverri grein hljóta verðlaunapening og stigahæsta félag hlýtur farandgrip. Allir 11 ára og yngri fá þátttökuverðlaunapening.

Þátttakendur mæta með eigin borðtennisspaða á mótið.

Borðtennisnefnd HSK

Aðrar fréttir