Automatic translation by Google Translate. We cannot guarantee that it is accurate.

Hinn hálfíslenski Borgar Haug að gera góða hluti með norska landsliðinu á Alþjóðlega Junior og Cadet mótinu í Ungverjalandi (2-6 nóvember)

Ungverska Junior og Cadet mótið fer fram dagana 2.-6. nóvember í Savaria höllinni í  Szombathely í Ungverjalandi.  Um mjög sterkt mót er að ræða og er hægt að fylgjast með úrslitum mótsins hér.  Borgar Haug er sonur hjónanna Áslaugar Skúladóttur og  Tom-Erik.  Haug leikur á mótinu fyrir Noreg í Cadet flokki og er að standa sig afbragðsvel.  Hægt er að sjá hann spila hér á mótinu.  Hann varð í dag efstur í sínum undanriðli í einliðaleik  þar sem hann sigraði Levente Krebs frá Ungverjalandi og Andrei Tomica frá Rúmeníu og leikur hann á morgun í 64 manna úrslitum þar sem er beinn útsláttur.  Í tvíliðaleik þar sem hann leikur með liðsfélaga sínum Alexander Fransson  töpuðu þeir naumlega í annarri umferð gegn sterku pari frá Frakklandi (Jules Cavaille og Bilal Hamache) 3-2.  Áður höfðu þeir unnið í fyrstu umferð par frá Chile og Serbíu 3-1.

Í liðakeppninni lék Cadet lið Noregs í riðli með Ungverjalandi og Singapúr.  Noregur tapaði 3-2 gegn Ungverjalandi en þar vann Borgar báða leiki Noregs gegn þeim Patrik Juhasz og Csaba Andras.  Leikurinn gegn Singapúr fór 3-0 fyrir Singapúr.

borgar-haug-1-ungverjaland

 

Aðrar fréttir