Hjálmarsmót KR fer fram 3.-4. október
Borðtennisdeild KR heldur Hjálmarsmótið helgina 3. og 4. október 2026 í Íþróttahúsi Hagaskóla.
Laugardagur 1. Blokk. Hefst kl 14:00
Stelpur og strákar u16 (f. 2011 eða fyrr)
Meistaraflokkur karla Elite
Meistaraflokkur kvenna Elite
Karlar og konur 40 ára og eldri
Sunnudagur 2. Blokk. Hefst kl 9:00
Stelpur og strákar u12 (f. 2015 eða fyrr)
Byrjendaflokkur
Opinn Flokkur C (u 1500 stig)
Opinn Flokkur B (u 2000 stig)
Sunnudagur 3. Blokk. Hefst kl 14:00
Big Table tvíliðaleikur með forgjöf
Fyrirkomulag keppni
● Keppa má í 3 flokkum alls, en þó einungis 1 flokki í hverri „blokk“.
● Ef of fáir skrá sig í einn flokk mun mótstjórn sameina flokka til þess að fá fleiri leiki.
○ Flokkar í 1. blokk hefjast á milli 14:00-16:00.
○ Flokkar í 2. blokk hefjast á milli 09:00-11:00.
○ 3. blokk hefst kl 14:00.
● Keppt verður í 3-5 manna riðlum í öllum flokkum þar sem efstu 2 fara áfram í beinan útslátt. Leiknar verða 3-5 lotur í öllum flokkum.
Skráning
Skráning fer fram í gegnum skráningarform KR. Skráningarformið má finna hér:
https://forms.gle/TK7eiWbcQNXf2mGa7
Ef skráningarformið gengur ekki má senda skráningu með tölvupósti á netfangið [email protected] og [email protected]. Í skráningu skal taka fram fullt nafn keppanda, kennitölu, félag og skal taka skýrt fram í hvaða flokkum keppandinn vill keppa í, ásamt liðsfélaga í bigtable tvíliðaleiknum ef við á.
Skráningafrestur rennur út miðvikudaginn 30. september kl. 19:00.
Röðun
Raðað verður í riðla fyrir mótið í Íþróttahúsi Hagaskóla miðvikudaginn 30. september kl 20:00. Raðað verður samkvæmt keppnisreglum BTÍ þar sem að lágmarki 4 leikmenn fá röðun í hverjum flokki. Leikið verður með hvítum Stiga 3ja stjörnu plastkúlum.
Þátttökugjöld
● Meistaraflokkur Elite kr. 4000,-
● Big Table með forgjöf kr. 5000,- á lið
● Aðrir flokkar kr. 3000,-
Greiða skal inn á bankareikning Borðtennisdeildar KR við skráningu en annars í síðasta lagi áður en keppni hefst á mótsstað,
– Bankareikningur: 0137-26-008312,
– Kennitala 661191-1129.
Setjið í skýringu við greiðsluna fyrir hvaða leikmann greitt er. Sendið afrit á [email protected].
Verðlaun
Bikarar eða verðlaunapeningar verða veittir fyrir efstu fjögur sætin í hverjum flokki, nema í flokkum þar sem verða peningaverðlaun.
Í Meistaraflokki Elite fær
– 1. sæti kr. 20.000,-
– 2. sæti kr. 8.000,-
– 3.-4. sæti kr. 4.000,-
Í Big Table tvíliðaleik með forgjöf þá fær
– Parið í 1. sæti kr. 16.000,-
– Parið í 2. sæti kr. 8.000,-
Verðlaunafé í öðrum fullorðinsflokkum veltur á skráningu.
Athugið að Meistaraflokkur Elite gefur stig fyrir 8 efstu sætin sem gilda inná lokamót BTÍ.
Mótstjórn:
Skúli Gunnarsson, gsm. 845 2585, [email protected]
Pétur Gunnarsson, gsm. 662 3949, [email protected]
Yfirdómari er Ársól Clara Arnardóttir.
Fyrir hönd Borðtennisdeildar KR
Skúli Gunnarsson
Frekari útskýringar á ákveðnum flokkum:
● Varðandi Meistaraflokk elite flokkana
○ Öllum er heimil þátttaka í þessum flokkum, það er ekki skylda að vera í meistaraflokki.
○ Efstu 4 skv. styrkleikalista fara beint áfram í útsláttarkeppni, en það veltur þó á fjölda keppenda.
Fyrirkomulag og útskýring á bigtable tvíliðaleik með forgjöf:
● Bigtable:
○ 4 borðtennisborðum er komið saman, sem mynda þá eitt stórt borðtennisborð.
○ Skilrúm (grindur) eru notuð sem net.
○ Uppgjafareglur eru eins og í venjulegum tvíliðaleik.
○ Kúlan má skoppa ótakmarkað oft á þínum borðhelming.
○ Það þarf að skiptast á að slá kúluna eins og í venjulegum tvíliðaleik.
○ Í meðfylgjandi myndbandi má sjá hvernig bigtable lítur út
■ https://www.youtube.com/watch?app=desktop&v=KxCy5irb3rE
● Leikið verður í riðlum en fjöldi liða í riðli fer eftir skráningu.
● Tvö efstu tvíliðaleikspör hvers riðils fara upp úr riðlinum og leika þá í útsláttarkeppni fram að úrslitum.
● Til að vinna leik þarf að:
○ vinna 2 lotur fram að undanúrslitum.
○ Í undanúrslitum og úrslitum þarf að vinna 3 lotur, en oddalota verður einungis leikin upp að 6 stigum.
● Báðir flokkar eru blandaðir, svo heimilt er að skrá til leiks tvíliðaleikspar sem samanstendur af tveimur einstaklingum af sama kyninu eða þá sitt hvoru kyninu.
● Forgjöfin fer eftir samtals stigamun á milli liða og verður eftirfarandi:
○ 0-200 stig: 0 stig
○ 201-300 stig: 1 stig
○ 301-400 stig: 2 stig
○ 401-600 stig: 3 stig
○ 601-1000 stig: 4 stig
○ 1001+ stig: 5 stig
Hér má sjá auglýsinguna: Hjálmarsmót KR 3. og 4. október 2026


