HK – Akur
Í beinu framhaldi af úrslitaleikjum 2. deildar í gær fór fram leikur liðsins sem varð í 2. sæti 2. deildar karla (Akur) og liðsins sem varð í 5. sæti 1. deildar karla (HK). Léku liðsmenn Akurs því einn leik til viðbótar í gær og nú við lið HK skipað þeim Bjarna Þorgeiri Bjarnasyni, Birni Gunnarssyni, Brynjólfi Þórissyni og Csanád Forgács-Bálint.
Vann lið HK leikinn sannfærandi 4-0.
Var þessi leikur síðasti leikur keppnistímabilsins. Næsta tímabil hefst í ágúst nk.
II