HK-ingar sigursælir á unglingamóti HK
Unglingamót HK var haldið í Íþróttahúsi Snælandsskóla í Kópavogi laugardaginn 24. október. Skráðir keppendur voru 48 talsins frá BH, Dímon, Garpi, HK, ÍA, KR, Selfossi og Víkingi.
HK-ingar voru sigursælir á mótinu og sigruðu í þremur yngstu strákaflokkunum en leikmaður frá BH sigraði í elsta aldursflokki drengja. Í fyrsta skipti í mörg ár kepptu borðtennismenn fyrir ÍA á borðtennismóti og sigraði leikmaður ÍA í meyjaflokki.
Verðlaunahafar:

Hnokkar undir 11 ára
1. Óðinn Hechmann Emilsson, HK
2. Viggó Arnarson, HK
3.-4. Mikael Yngvi Ricardoson, KR
3.-4. Pétur Freyr Helgason Darai, HK

Piltar undir 13 ára
1. Sindri Karl Heimisson, HK
2. Þór Hechmann Emilsson, HK
3.-4. Esteban Gabríel O. Gunnarsson, Garpur
3.-4. Sölvi Björn Björnsson, Víkingur

Meyjar undir 15 ára
1. Karen Eva Sigurðardóttir, ÍA
2. Helen Amalía Guðjónsdóttir, ÍA
Sveinar undir 15 ára (sjá mynd á forsíðu)
1. Brynjar Gylfi Malmquist, HK
2. Vincent Daniel Guerrero Manaure, BH
3.-4. Ármann Darri Ísleifsson, Víkingur
3.-4. Hrafnar Freyr Leósson, Dímon

Drengir undir 19 ára
1. Heiðar Leó Sölvason, BH
2. Sigurður Einar Aðalsteinsson, BH
3. Haukur Elí Sölvason, BH
4. Tryggvi Týr Marinósson, BH
Úrslit úr öllum leikjum á mótinu má sjá á vef Tournament Software, sjá https://www.tournamentsoftware.com/tournament/D9B66006-176D-4C00-A82A-302375D9D921
Myndir frá HK.


