HK keppir í Evrópukeppni
Um helgina tekur lið HK þátt í Evrópukeppni félagsliða í borðtennis eða Europe Trophy. Keppnin fer fram í Lettlandi 26. og 27. nóvember. Það er nokkuð langt um liðið síðan íslenskt félagslið hefur tekið þátt í Evrópukeppni og tilefni til að fagna þessu framtaki HK.
HK leikur í riðli með liði frá Eistlandi, Portúgal, Póllandi og Lettlandi. Dagskrána má finna á vef ETTU og á ETTU TV verður hægt að fylgjast með beinum útsendingum frá leikjum.
Lið HK skipa eftirtaldir
- Bjarni Þ. Bjarnason
- Björgvin Ingi Ólafsson
- Óskar Agnarsson
- Örn Þórðarson
- Victor Berzoi
Úrslitakeppni verður leikin í mars á næsta ári.
Fylgst verður með úrslitum úr leikjum um helgina og þau birt á Facebook síðu BTÍ.