HM í borðtennis hefst 29. apríl
HM í borðtennis hefst 29. apríl. Þetta árið er keppt í liðakeppni og fer keppnin fram í Halmstad í Svíþjóð. Ísland náði ekki að vinna sér inn þátttökurétt á mótinu að þessu sinni.
Ingimar Ingimarsson, formaður BTÍ sækir þing ITTF, þing ETTU og þing NETU. Hópur Íslendinga ætlar að fara á mótið og fylgjast með keppni og sækja aðra viðburði í tengslum við mótið.
Hægt verður að fylgjast með leikjum á mótinu á vef ITTF, sjá https://www.ittf.com/2018-wttc-tv/
Mynd frá ITTF.
ÁMU/II